Guiding-light

Leiðarljósið

24.11.2006 20:07:10 / wundersex

Dubai 2 :)

Jæja þá er Dubai ævintýrið að ljúka í bili, þetta er búið að vera frábært í alla staði...

Við flúðum rigninguna í vatnagarðinum og beint í mollið, fengum okkur yndislegan kínamat og fórum svo á verstu mynd í heimi "The Best man" mæli hreinlega ekki með henni....

Svo var bara ströndin daginn eftir, pöntuðum okkur djúsí burger king heim til Peters og brunuðum svo á æðislegan grjónapúðastað, hittum Snjólaugu og Thomas, hlustuðum á live band og fengum okkur í aðra tánna.... vaknaði daginn eftir með verstu þynnku sem getur orðið, gat varla legið í sólbaði daginn eftir í hitanum... úff getiði ýmindað ykkur...8)

En dagurinn í dag var okkar síðasti í fyrsta hluta ferðarinnar því eftir örfáar klst fljúgum við á næsta áfangastað okkar London... við enduðum ferðina á því besta, fórum í eyðimerkur-jeppa-safarí, það var magnað, bílstjórinn okkar var nokkuð geggjaður á því, keyrði eins og brjálaður, svo var farið í "camp" farið smá rölt á kameldýri, borðaður grillmatur og horft á magadans og létum við Jóhanna og Ómar ljós okkar skína á dansgólfinu.... það var reyndar einn galli á þessari ferð, við urðum í fyrsta skipti í Dubai fyrir áreiti fyrir að vera "kona", það var s.s. hlaðborð og því var skipt í tvennt, okkur var vísað að einu borðinu og náðum að vera fyrst, svo kemur allt í einu gaur upp að okkur og skipar mér og Jóhönnu að fara í hina röðina af því þessi var aðeins fyrir "gents" það hefði verið allt í lagi að fara í hina röðina en hann var bara svo fullur fyrirleitningar gagnvart konum... ohhh ég hefði átt að sparka í helv... punginn á honum....

En allavega verð að fara að drulla mér í háttinn.. langt flug framundan :$

tjutilú...


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 15:11:50 / wundersex

Dubai:)

Sól sól skín á mig ský ský burt með þig lalalalalalalala...... það þarf nú ekki að syngja þetta lag hérna í Dubai, nema kannski í dag þar sem rigndi í fyrsta sinn síðan í janúar, ekki lengi samt en vei... en ansi blautur dagur, vöknuðum eldsnemma í morgun, fórum í morgunmat og svo var stefnan tekin á Wild Wadi rennibrauta garð, það sem Dubai á ekki að vera þekkt fyrir annað en að vera einu skrefi framar var þetta einn sérkennilegasti rennibrautagarður sem ég hef farið í, ekkert af þessum hefðbundnu rennibrautim en það var ein stór í kringum garðinn með endalausa möguleika á að breyta henni í hvert sinn sem þú fórst því þú valdir þína eigin leið og hún varð skrítnari því í staðinn fyrir að renna þér niður varstu á belgjum og þér var spítt upp af ofurkrafti, en svo var öldulaug og ein svona "vedsí" braut, þar sem þú þarft að klemma allt og halda þér saman meðan þú ferð á ofurhraða niður :D

En allavega þýðir víst ekki að væla yfir smá rigningu hér miðað við hvernig veðrið er heima hehe við erum nú búin að liggja í sólinni á ströndinni og upp á þaki hérna alla daga og slöppum af, notum svo seinni partinn að kíkja í mollið, fara út að borða og gaman....8)

Ótrúlega spes borg sem við erum í núna, bara allt annar heimur, algerlega skipulagslaus í samgöngum, ekkert lestarkerfi, engar göngugötur (nema kannski gull markaðurinn, en það er líka skítugasta og furðulegasta hverfið sem við höfum farið í) allir þurfa s.s. að komast á milli staða í einkabílum eða leigubílum og þar af leiðandi er endalust umferðarönþveiti hérna....

Kíktum í innflutningspartý hjá Snjólaugu og Thomasi í síðustu viku, ótrúlega gaman að hitta þau, voru með grillpartý upp á þaki, þar sem Ómar the grillmaster tók að sér (eða var látinn taka að sér) að grilla, þar sem Thomas var að vinna aðeins of lengi, en það heppnaðist nú bara mjög vel og voru allir saddir og glaðir þegar var haldið niður í partý þar sem við sönnu íslendingarnir voru að sjálfsögðu síðasta fólkið að yfirgefa gleðina..:haha:

Síðan höfum við aðallega verið í sólbaði og versla... það er hægt að versla hérna, það er nánast farið daglega í mollið "bara að kíkja" og fá okkur að borða, en yfirleitt er gengið út með 1-2 poka :) Jæja ætlum að kíkja niður í mat..... Bæjó..


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 09:42:04 / wundersex

Bratwurst hvað !!!

Jæja ég get nú alveg sagt ykkur það að maður vinnur svo sannarlega fyrir laununum sínum á duus... það eru bara allir dagar crazy, hlaup í 12 tíma, ég þarf allavega ekki að fá mikið samviskubit ef ég kemst ekki í ræktina.. verð fljót að missa það sem eftir er ef þetta heldur svona áfram.... annars er þetta ekkert svo leiðinlegt starf bara ógeðslega erfitt og krefjandi :S

Vá hvað það var gott að fá hann Ómar minn aftur heim.... byrjaði laugardaginn á einhverju höfuð-beina- og spjaldhryggs meðferð, hélt að ég væri að fara í einhvers konar nudd, eina sem ég vissi fyrirfram var að þetta kostaði 4000 og átti að jafna orkustöðvar líkamans... hahahaha þetta átti alls ekki við mig og alls ekki það sem ég hélt að þetta væri, gellan byrjaði á því að sofa yfir sig, svo bara setti hún hendina sína undir mjóbakið á mér og ég get svarið fyrir það að hún var dottandi, gerðist ekkert nema það í svona 20 mín. svo færði hún hendina í nárann og tók í fótinn og sagði "þú ert nú alveg orkulaus, ha það er bara engin orka, vá sjaldan hef ég fundið þetta en þú ert rosalega næm ég finn alveg fyrir því" bíddu haaa þetta bjargaði allavega deginum fyrir fávitaskap að láta plata mig út í þetta....... eftir þetta ævintýri var svo drifið sig í vinnuna var til 11 um kvöldið og á mettíma var skipt yfir í djammgírinn, skellt sér í mini pilsið og bollu bol, smá andlit og svo út á vit ennþá fleiri ævintýra... hitti þá loksins Ómar og skellt í sig bjór og hvítvín á aðeins of stuttum tíma, kíktum á næturlífið í kef, hittum Jóhönnu og Peter sem voru að koma frá Dubai og ef ég man rétt þá var ég búin að lauma Ómari út og heim um 2 leytið :D

Fermingarveisla hjá Magga á sunnudaginn, sem er ekki frásögu færandi nema ég verð að segja ykkur að ég hef aldrei verið stolltari af frænda... í miðri veislu stendur hann upp fyrir framan alla með Tyrfa sér við hlið með gítar og tekur lagið fyrir gesti, dúllan söng í sinni eigin veislu... ég þorði varla að bjóða fólk velkomið og segja gjörið svo vel...:!:

Svo erum við að fara til Akureyrar seinnipartinn í dag, stoppum reyndar fyrst á Hofsósi hjá Bjarka og verðum líklega á Akureyri á laugardaginn, aðeins að heilsa upp á Ásgeir bróðir hans Ómars, veit ekki ennþá hvenær planið er að koma heim en það verður ekkert smá gott að komast aðeins út úr bænum, kannski verður ball með jet black joe, rifja upp sælar minningar og bjóða þeim í smá partý eftir á... fallega ruglið sem það var :klikk:

En vá ætlaði ekki alveg að skrifa svona mikið... sá bara komentið hjá Guðný um að þessi síða væri að ná bratwurst stíl, ætla ekki alveg að láta það gerast strax8|

Gleðilega páska

Rósa


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.01.2005 00:01:47 / wundersex

Velkomin(n)

Vegna mikilla fyrirspurna ákváðum við Kristjana að opna blogg síðu sem innihéldi smá húmor, viljum við veita athygli á því að ef einhver hyggst á að skrifa væmið comment verður delítað á stundinni. Við tileinkum síðunni sorum Reykjanesbæjar s.s. Hinna Bakara og að sjálfsögðu frúnni, Feita kvikindinu á hinum margrómaða stað Traffic, Stínu Hjalta og syni hennar Tony og þið hin þekkið ykkur.:evil:

TESTING

TESTING

123

HALLÓ

HALLLÓÓÓ

MONNKEH


» 7 hafa sagt sína skoðun


Leikir